Title | : | Elling: Paradís í sjónmáli |
---|---|---|
Author | : | Ingvar Ambjørnsen |
Release | : | 2024-02-16 |
Kind | : | ebook |
Genre | : | Fiction & Literature, Books |
Size | : | 1212690 |
"Mamma dó. (…) Hún var einbirni. Ég var einbirni. Það kom enginn í heimsókn." Á þessum nótum hefst fyrsta bókin í ritröðinni um Elling, einmana sérkennilegan mann sem lesendur komast ekki hjá að þykja vænt um, enda sjá þeir sig sjálfa í honum. Elling býr í blokk í Osló með móður sinni og virðast þau aðeins hafa félagsskap hvort af öðru. Þegar móðir Ellings deyr tekst hann á við einmanaleikann með því að kaupa sér stjörnukíki sem hann notar til að fylgjast með nágrönnum sínum og lifa sig inn í tilveru þeirra. Þannig uppgötvar hann að allir eiga sér leyndarlíf og enginn er eins og hann virðist vera út á við. |